<$BlogRSDUrl$>

24. ágúst 2006

Here I come to save the day!!!!! 

Jæja minns búinn að fá vinnu í Babýlon(Reykjavík). Fer að vinna hjá fyrirtæki sem heitir Vatn og Hiti þann 4. sept. Það sérhæfir sig í sölu á sérhæfðu lagnaefni.
Verksvið mitt er "Ráðgjöf, sala og afgreiðsla".

Eina sem vantar núna er húsnæði í Reykjavík.

Einn mikill ókostur við þetta er að ég verð sennilega að gefa Gosa minn frá mér. :(
Ég mun koma til með að vinna frá 8-18 alla virka daga. Og ég get bara ekki hugsað mér að skilja hann eftir einan allan þennan tíma.
Svo ef þið lesið það sem stendur efst á síðunni minni, þá er ég voða duglegur að gera "nothing". Ég er of latur fyrir hann Gosa. :(
Þetta verður örugglega það erfiðasta sem ég mun gera hingað til.
En þetta er gert með hagsmuni hundsins í huga. En það mun ekki hver sem er fá hann Gosa minn. Það er á hreinu.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?